Saga

Saga töflureiknikerfisins fyrir Einyrkja LaunaUppgjör

Seljandi gerði fyrstu útgáfu Einyrkja – LaunaUppgjör árið 1988 fyrir verslunarrekstur og hefur það verið í notkun síðan. Það var því um 21 árs við upphaf ársins 2010.

Kerfið hefur tekið litlum breytingum gegnum árin, fyrst og fremst eftir því sem breytingar á skattalegum atriðum og atvinnurekendagjöldum kröfðust þess. Slíkar breytingar hafa ekki verið stórvægilegar og hafa ekki kallað á grundvallarbreytingar á töfluverki kerfisins.

Árið 2009 var svo bætt við nýju afbrigði af kerfinu, Einyrki LaunaUppgjör fyrir útgerð. Það er eins og almenna grunnútgáfan, en inniheldur auk þess utanumhald á sjómannaafslætti, dagafjölda og upphæð v/sjómannaafsláttar, uppsafnað yfir árið.

Árið 2009 var einnig boðið upp á nýtt töflureiknikerfi fyrir rekstur, Einyrki Vsk-Uppgjör. Það heldur utan um innskatt, útskatt skv. sölureikningum og nýtist vel við uppgjör og afstemmingu á virðisaukaskatti fyrir viðkomandi uppgjörstímabil. Skilar fylgiskjölum fyrir fjárhagsbókhald, ásamt sundurliðun fyrir útfyllingu á virðisaukaskattsskýrslu RSK 10.01.

Óhætt er að segja að Einyrki hafi gagnast vel og sparað ómældan tíma og vinnu þar sem hann hefur verið notaður.