© Einyrki-Launakerfi 2.24 í MS-Excel á PC
fyrir launaárið 2024

Útgáfa fyrir 2024 er nú tilbúin til afhendingar

Launaútreikningur er nú ekkert vandamál.
(Útg. 2023 enn fáanleg á 4.000-6.000 kr. m/vsk)

Einyrki Launakerfi er töflureiknikerfi í MS-Excel á PC fyrir launauppgjör m/launaseðlum, gerð skilagreina til RSK, lífeyrissjóða o.fl.

Einyrki – Launakerfi hentar þeim rekstraraðilum og fyrirtækjum sem ekki þurfa „stórt“ og kostnaðarsamt launabókhaldskerfi, sérstaklega sjálfstætt starfandi sem eru að hefja rekstur og vantar upplýsingar um ýmislegt varðandi útreikning á launum og launatengdum gjöldum og skil á staðgreiðslu til RSK og skilageinum til lífeyrissjóða.

Með Einyrkja geta t.d. einyrkjar, verktakar og stjórnendur mannfárra fyrirtækja (t.d. eignarhaldsfyrirtæki) hæglega unnið launaútreikninga og skilagreinar sjálfir fyrir rekstur sinn á einfaldan og hagkvæman hátt. Gerið þetta sjálfir launagreiðendur; þið hafið bara gaman af því með Einyrkja-Launakerfi og þurfið því ekki að afhenda utanaðkomandi aðilum gögn ykkar um launamál.

Mismunandi útgáfur fyrir að hámarki 1, 2, 4, 6, 8 eða 10 starfsmenn, sbr. verð neðar (sérlausnir mögulegar).

einyrki2011forsida72

Hér er sýnishorn af skjámynd þar sem sést í töflur Einyrkja fyrir launaútreikning sem verið er að vinna með í MS-Excel, (útgáfa frá 2011 sem hefur þróast síðan). Grænir reitir eru fyrir innslátt upplýsinga.

Einyrki er óvenjulega ódýr miðað við innihald, notagildi og vinnusparnað, sem sé Hagkvæm lausn.

Verð á útg. 2024 er afar hagstætt (óbreytt f.f.ári):

Einyrki Launakerfi 1: 8.900 kr. m/vsk. 

Einyrki Launakerfi 2: 9.900 kr. m/vsk. 

Einyrki Launakerfi 4: 11.900 kr. m/vsk.

Einyrki Launakerfi 6: 12.900 kr. m/vsk. 

Einyrki Launakerfi 8: 13.900 kr. m/vsk. 

Einyrki Launakerfi 10: 14.900 kr. m/vsk. 

(endurnýjunarverð á nýju ári er með 25% afslætti af listaverði)

* * * * * *

kristinn_snaevar_jonsson

Nánari upplýsingar: Kristinn Snævar Jónsson cand.merc., Hugborg sf., í síma 845-9904
Fyrirspurnir er líka hægt að senda á netfangið kristinn hjá hugborg.com

Býð einnig upp á rekstraráætlanagerð og greiningar með tilheyrandi reiknilíkanagerð. Mikil reynsla.

Sjá nánar á www.hugborg.com

Verð 19.900 kr/klst + vsk, eða eftir samkomulagi.

 

* * * * * *
Hvað er í Einyrkja-Launakerfi ?

einyrki2010Í Einyrkja – Launakerfi eru útreikningar á:

  • Mánaðarlegum launum starfsmanna og/eða reiknuðu endurgjaldi
  • Útreikningur á staðgreiðsluskatti í skv. þrepum og nýttum og ónýttum persónuafslætti.
  • Auðvelt að taka tillit til launa starfsmanna hjá öðrum launagreiðendun með tilsvarandi hliðrunum á skattþrepum.
  • Launaseðlatöflur fyrir að hámarki tvo, fjóra, sex, átta eða tíu starfsmenn eftir útgáfum kerfisins.
  • Launatengdum gjöldum, þar með talið tryggingagjaldi.
  • Upplýsingum fyrir útfyllingu á mánaðarlegum sundurliðunum á staðgreiðslu opinberra gjalda (staðgreiðsluskatts og tryggingagjalds) við vefskil á skattur.is.
  • Upplýsingum til útfyllingar á mánaðarlegum skilagreinum til lífeyrissjóða, svo sem Lífeyrissjóðs verzlunarmanna eða annarra lífeyrissjóða með hliðstæðar skilagreinar, Stafa og SL-Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Einnig er almennt form skilgreina fyrir séreignarsparnað sem nýtist fyrir ýmsa aðra sjóði.
  • Uppsafnaðri stöðu launa og frádráttar- og gjaldaliða og atvinnurekendagjöldum mánuð fyrir mánuð, m.a. eiginn persónuafslætti og maka.
  • Atriðum tengdum ofangreindum þáttum; Dagpeningar og Ökutækjastyrkir í og utan staðgreiðslu, bifreiðahlunnindi sundurliðun sem hluti af heildarlaunum.
  • Kerfið sparar einyrkjum sem eru að hefja rekstur mikinn tíma og pælingar varðandi launauppgjör og tengd atriði sem þarf að huga að.
    Einnig er:
  • Útprentun á mánaðarlegum launaseðli starfsmanna.
  • Útprentun á upplýsingum fyrir sundurliðun og skilagreinar, sem nýtast einnig sem fylgiskjöl fyrir fjárhagsbókhald launagreiðanda.
  • Útprentun á launamiðum fyrir framtal launa í árslok til innsláttar fyrir vefskil.

Einyrki er einfaldur í notkun – Aðeins þarf að slá inn nokkrar forsendur í upphafi og síðan mánaðarlegar upplýsingar um vinnutíma og –(mánaðar- eða tíma)laun starfsmanna.
Útreikningar fyrir yfirfærslur talna milli mánuða, sundurliðanir og skilagreinar gerast sjálfkrafa.
Notkunarleiðbeiningar fyrir innsláttarreiti eru á viðkomandi stöðum í töflunum. Einnig:
Upplýsingar um atriði varðandi launatengd gjöld og skatta með tilvísunum í helstu viðkomandi lög og reglur.
* Einfalt, hraðvirkt og þægilegt í notkun – og ódýrt! = Hagkvæmt.

Auk þess er gaman að gera þetta sjálf(ur) á svona einfaldan og hraðvirkan hátt með Einyrkja.

Kaupendur/notendur Einyrkja þurfa að hafa PC einmenningstölvu og nýlega útgáfu af MS-Excel til að geta notað Einyrkja. Þó er einnig hægt að nota útgáfuna fyrir 1 starfsmann á Microsoft Excel:mac, en í þeirri útgáfu eru allar töflur í einni Excel-Workbook.

Lykilorð í Einyrki Launakerfi: Verð frá 8.900kr m/vsk, Launaútreikningur, launauppgjör, og skilagreinar prentast út.

 *  *  *  * * * *

Einnig er í boði sérstandandi töflureiknikerfi fyrir uppgjör á virðisaukaskatti:

Einyrki Vsk-Uppgjör: 9.900 kr. m/vsk. (eins-skiptis verð)

Hvað er í Einyrkja Vsk-Uppgjöri, í MS Excel ?

Í Einyrkja Vsk–Uppgjöri er:

  • vskskrslaÚtreiknað og samandregið yfirlit (uppgjörsblað) til afstemmingar á uppgjöri vsk fyrir tiltekið uppgjörstímabil. vsk-skýrsla.
  • Uppgjörsblað sem hægt er m.a. að útfylla Virðisaukaskattsskýrslu RSK 10.01 eftir (sama sundurliðun).
  • Uppgjörsblaðið nýtist jafnframt sem hluti fylgiskjals vsk-uppgjörs fyrir fjárhagsbókhald.
  • Innsláttartöflur fyrir innskatt skv. kostnaðar- og innkaupareikningum.
  • Innsláttartöflur fyrir söluupphæð m/vsk skv. sölureikningum.
  • Sundurliðun á innskatti, veltu og útskatti eftir vsk-þrepum.
  • Töflur með upplýsingum um rekstraraðila, vsk-þrep o.fl.
  • Útprentun á öllum töflum.
  • Leiðbeiningar fylgja með fyrir notkun kerfisins og útfyllingu upplýsinga.
    * Einfalt, hraðvirkt og þægilegt í notkun – og ódýrt! = Hagkvæmt.

Lykilorð í Einyrki Vsk-Uppgjör: Virðisaukaskattur, vsk-útreikningur, virðisaukaskattsskýrsla.